Í vetur ætlum við á Holti að vinna með „Sögur og ævintýri“. Unnið verður út frá einni bók eða sögu/ævintýri þar sem börnin fá sjálf að ráða förinni. Könnunaraðferðin og aðferðir Reggio Emilia verða í öndvegi til að nálgast viðfangsefnið. Við leggjum áherslu á að börnin fái að uppgötva, kanna, rannsaka, skapa og reyna sjálf. Í gegnum verkefnið fá þau fjölbreytt tækifæri til að læra og vera vakandi fyrir því sem þau sjá og heyra. Við höfum einkunnarorð leikskólans að leiðarljósi sem eru: gleði – virðing – sköpun – þekkingarleit.
Stöðvavinna verður þrisvar í viku, þar sem börnin velja sér svæði og vinna í verkefnum til lengri eða skemmri tíma, allt eftir áhuga og þróun viðfangsefnisins. Í stöðvavinnu er fjölbreytt leikumhverfi bæði úti og inni, auk þess gott aðgengi að leikefni og efnivið sem hvetur og styður barnið í þekkingarleit sinni. Við val á viðfangsefni er tekið mið af reynslu og áhuga barnsins og um leið verið að styrkja sjálfsmynd og sjálfsvitund þess.
Við munum leggja spurningar fyrir börnin nú í haust varðandi sögur og ævintýri og fylgja þeim svo eftir aftur næsta vor. Þannig getum við séð hvað börnin hafa upplifað og uppgötvað yfir veturinn. Spurningarnar eru þessar:
- Hvað er ævintýri?
- Hvað er saga?
- Hvað gerist í ævintýri?
- Hverjir eru í ævintýri?
- Getur þú lent í ævintýri?
- Getum við lært eitthvað af ævintýrum?