Á Hlíð eru 22 börn öll fædd árið 2007. Á deildinni starfa fjórir kennarar, Magnea (Magga), Berglind, Bryndís og Ragnheiður.
Á Hlíð finnst okkur mikilvægt að börnin fái að njóta sín og læra í gegnum leik. Mikilvægt er að efla alla þroskaþætti barnanna til hreyfingar, listsköpunar, tjáningar og sterkari félagsvitundar.
Tónlistin setur sterkan svip á starfið og áhersla er lögð á næmni fyrir hljóðum, hreyfingu og hrynjanda. Við vinnum með tónlistarhugtök eins og sterkt – veikt. Við syngjum mikið og reynum þá að velja gömul íslensk lög, nýja tónlist, barnalög, hreyfisöngva o.fl. Unnið er með söng og hlustun oft á dag í tónlistartímum, samverustundum, söngstundum, vinnustundum, hvíldarstundum og í fataklefa.
Í tónlistartímum með Geirþrúði tónlistarkennara er unnið út frá sönglögum og leitast er við að hafa fjölbreytt lagaval. Börnin læra að umgangast hljóðfærin í stofunni, þekkja þau með nafni, æfa sig í að hlusta eftir mismunandi blæ og læra þannig að þekkja hljóðfærin eftir heyrn.
Listasmiðja er í boði fyrir börnin þar sem ánægja, sköpun og hæfileikar fá að njóta sín til fullnustu. Salurinn er í boði fyrir börnin bæði sem kubbasmiðja og til skipulagðar og frjálsrar hreyfingar.
Umhverfismál eru okkur hugleikin og fengum við Grænfánann í annað sinn í vor. Unnið verður áfram með endurvinnslu og garðrækt með ýmsum hætti.
Í vetur ætlum við á Holti að vinna með „Sögur og ævintýri“. Unnið verður út frá einni bók eða sögu/ævintýri þar sem börnin fá sjálf að ráða förinni. Könnunaraðferðin og aðferðir Reggio Emilia verða í öndvegi til að nálgast viðfangsefnið. Við leggjum áherslu á að börnin fái að uppgötva, kanna, rannsaka, skapa og reyna sjálf. Í gegnum verkefnið fá þau fjölbreytt tækifæri til að læra og vera vakandi fyrir því sem þau sjá og heyra. Við höfum einkunnarorð leikskólans að leiðarljósi sem eru: gleði – virðing – sköpun – þekkingarleit.
Stöðvavinna verður þrisvar í viku, þar sem börnin velja sér svæði og vinna í verkefnum til lengri eða skemmri tíma, allt eftir áhuga og þróun viðfangsefnisins. Í stöðvavinnu er fjölbreytt leikumhverfi bæði úti og inni, auk þess hafa þau gott aðgengi að leikefni og efnivið sem hvetur og styður barnið í þekkingarleit sinni. Við val á viðfangsefni er tekið mið af reynslu og áhuga barnsins og um leið er verið að styrkja sjálfsmynd og sjálfsvitund þess.
Við munum leggja spurningar fyrir börnin nú í haust varðandi sögur og ævintýri og fylgja þeim svo eftir aftur næsta vor. Þannig getum við séð hvað börnin hafa upplifað og uppgötvað yfir veturinn. Spurningarnar eru þessar:
- Hvað er ævintýri?
- Hvað er saga?
- Hvað gerist í ævintýri?
- Hverjir eru í ævintýri?
- Getur þú lent í ævintýri?
- Getum við lært eitthvað af ævintýrum?
Umhverfi leikskólans og útinám mun eiga veglegan sess hjá okkur í vetur og munum við taka þátt í þróunarverkefninu „Uppbygging útikennslusvæðis“ ásamt Akurskóla og leikskólanum Akri. Útikennslusvæðið hefur fengið nýja staðsetningu við Narfakotsseylu, sem er rétt við Víkingaheima. Vinna við byggingu þess hefst haustið 2011.
Markmið uppbyggingu útikennslusvæðis eru:
? Byggja upp útisvæði sem fellur að umhverfinu og sem nýst getur börnum, nemendum, kennurum og öðrum til útivistar
? Börn og nemendur taki virkan þátt í uppbyggingu útisvæðis frá upphafi til enda
? Efla tengsl og tilfinningu barna og nemenda gagnvart náttúrunni
? Auka umhverfismeðvitund, efla áhuga og jákvætt viðhorf til útináms og útiveru
? Nemendur og kennarar upplifi möguleika útináms
? Auka samstarf grunnskóla- og leikskóla
? Auka samstarf við stofnanir og fyrirtæki í samfélagi
Afmælisdagar barna á Hlíð:
Andrea Líf Örvarsdóttir 12.11.07
Aron Ingi Vilbergsson 28.04.07
Ásta Andradóttir 02.07.07
Ástrós Anna Ólafsdóttir 17.07.07
Birgitta Fanney
Björgvin Arnar Atlason 03.02.07
Björgvin Fannar Sveinsson 26.05.07
Edda Björk Njálsdóttir 05.06.07
Ernir Ólafur Gunnarsson 28.04.07
Guðmundur Hlíðar Pétursson 18.04.07
Haukur Freyr Ólafsson 26.04.07
Lilja Guðrún Vilmundardóttir 14.03.07
Lilja Líf Aradóttir 20.02.07
Magnús Freyr Kristmannsson 22.08.07
Magnús Sigurðsson 12.07.07
Margrét Ösp Árnadóttir 21.10.07
Njörður Freyr Sigurjónsson 21.06.07
Ragnheiður Inga Hjaltadóttir 30.10.07
Salka Rún Ásgeirsdóttir 25.06.07
Signý Magnúsdóttir 27.10.07
Una Rós Gísladóttir 20.07.07
Vilborg Ronja Ragnarsdóttir 22.08.07